

Deildarstjóri í Brákarborg
Við leitum að deildarstjóra sem er tilbúinn að vinna í stjórnendateymi Brákarborgar.
Í augnablikinu erum við með starfsemi í Brákarsundi og Ármúla en á nýju skólaári stefnum við á að flytja til baka í glæsilegt húsnæði okkar við Kleppsveg 150-152
Við leggjum áherslu á sjálfstæði barna og starfsfólks og vinnum með jákvæðan aga þar sem Lausnahringurinn er okkar aðal verkfæri. Unnið er eftir hugmyndafræði Caroline Pratt með einingakubba og John Dewey með áherslu á að læra af reynslunni. Einnig er unnið eftir stefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum, „Draumar geta ræst.“ Brákarborg er Regnbogavottaður skóli og þar er fjölbreytileikanum í öllum sínum myndum fagnað.
Einkunnarorð Brákarborgar eru: Agi - Virðing – Umhyggja.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni deildarstjóra eru að skipuleggja starfið í samstarfi við aðra stjórnendur. Deildarstjóri er ábyrgur fyrir foreldrasamskiptum og velferð barna og starfsfólks deildarinnar. Hann er einnig ábyrgur fyrir samskiptum við verkefnastjóra og sérkennslustjóra. Einnig sér deildarstjóri um að halda utan um mönnun sinnar deildar í tengslum við styttingu vinnuvikunnar.
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Færni til að nýta sér tölvur í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
- Heilsuræktarstyrkur












