Sólheimar ses.
Sólheimar ses.
Sólheimar ses.

Deildarstjóri Bláskóga og Fögrubrekku

Félagsþjónusta Sólheima óskar eftir að ráða öflugan deildarstjóra til starfa sem fyrst, í búsetukjarnann Bláskóga.

Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu, en möguleiki á tilfallandi vöktum. Í Bláskógum búa fatlaðir einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir.

Starfsfólk vinnur eftir þjónandi leiðsögn, hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu- og starfsáætlunum. Deildarstjóri vinnur í samræmi við lög og reglur í málefnum fatlaðra.

Deildarstjóri tekur þátt í að leiða uppbyggjandi starf í búsetukjarnanum og leggur sig fram við að skapa jákvæða og öfluga liðsheild sem stuðlar að samræmdum einstaklingsmiðuðum vinnubrögðum til aukinna lífsgæðá fyrir íbúana.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja faglegt starf í Bláskógum í samráði við forstöðumann
  • Daglegur rekstur um umsjón heimilisins
  • Kemur að starfsmannamálum heimilisins og vaktaskýrslugerð í samvinnu við forstöðumann.
  • Leiðir innra starf á heimilinu í samráði við forstöðumann
  • Ber ábyrgð á að framkvæmd þjónustunnar sé samkvæmt fyrirliggjandi þjónustuáætlunum og í samræmi við lög og reglur
  • Stuðlar að jákvæðum starfsanda og að starfsemin sé í anda gilda Sólheima
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýstist í starfi, s.s. sjúkraliðanám, þroskaþjálfanám og/eða félagsliðanám
  • Reynsla af vinnu með fötluðum einstaklingum nauðsynleg
  • Reynsla af umönnun mikilvæg
  • Reynsla af starfsmannahaldi og stjórnun æskileg
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reglusemi áskilin
  • Almenn góð tölvukunnátta nauðsynleg
  • Starfsmaður skal hafa hreint sakavottorð
  • Bílpróf nauðsynlegt
  • Starfsmaður þarf að starfa í samræmi við gildi Sólheima
Fríðindi í starfi
  • Aðgangur að líkamsrækt og sundlaug.
Advertisement published3. February 2026
Application deadline16. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Sólheimar 168279, 801 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)PathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags