Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Deildarstjóri á meðferðarheimilinu Lækjarbakka

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?

Barna- og fjölskyldustofa leitar eftir ábyrgum leiðtoga í starf deildarstjóra á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Heimilið er starfrækt í Gunnarsholti, rétt utan við Hellu og veitir börnum á aldrinum 12-18 ára sérhæfða meðferð. Starfið heyrir undir forstöðumann heimilisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Halda utan um daglegt og faglegt starf.
  • Samstarf við meðferðarteymi Barna- og fjölskyldustofu.
  • Ábyrgð á að framfylgja meðferðaráætlun og hafa yfirsýn yfir stöðu skjólstæðinga.
  • Ábyrgð á að fylgja eftir innleiðingu gagnreyndra aðferða í meðferðarstarfi.
  • Samskipti við samstarfsaðila og forsjáraðila ungmenna.
  • Stuðningur og ráðgjöf við starfsfólk.
  • Skipulag vakta og mönnunar.
  • Ábyrgð á starfsemi og stjórnun heimilisins í samstarfi við forstöðumann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • BA/BS próf sem nýtist í starfi eða sambærilegt, framhaldsnám er kostur.
  • Þekking og reynsla á meðferðarvinnu og meðferðarstarfi.
  • Þekking og reynsla á þeim gagnreyndu aðferðum sem Barna- og fjölskyldustofa starfar eftir.
  • Önnur reynsla sem nýtist í starfi.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Sveigjanleiki og þjónustulund.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í mæltu og rituðu máli.
Advertisement published4. August 2026
Application deadline17. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Lækjarbakki, Gunnarsholti við Hellu
Type of work
Professions
Job Tags