Mýrdalshreppur
Mýrdalshreppur

Deildarstjóri

Deildarstjóri

Leikskólinn Mánaland óskar eftir að ráða leikskólakennara í starf deildarstjóra. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að ganga til liðs við hóp faglegs starfsfólks, taka þátt í að þróa starfið ásamt því að vera hluti af samfélaginu. Skólinn er nýfluttur í glæsilegt nýtt húsnæði í Vík sem hannaður var sem 60 barna, þriggja deilda leikskóli þar sem lögð var áhersla á góða hljóðvist og góða aðstöðu í alla staði fyrir börn og starfsfólk.

Leikskólinn Mánaland er heilsueflandi leikskóli staðsettur í Vík í Mýrdal. Lögð er áhersla á holla og góða næringu auk góðrar almennrar lýðheilsu. Mánaland er fjölmenningarlegur leikskóli og teljum við að öll börn geti notið sín á sínum forsendum. Styrkleiki leikskólans felst í fjölbreytni; það er í lagi að vera ólíkur öðrum. Við leikum, lærum og eigum samskipti án fordóma. Lögð er áhersla á að efla samvinnu og samkennd í barnahópnum auk þess að byggja upp jákvæða sjálfsmynd allra barna þannig að þau geti sýnt styrkleika sína og þekkingu.

Sveitarstjórn samþykkti nýlega breytingar í leikskólaþjónustu með það að markmiði að bæta enn frekar náms- og starfsumhverfi leikskólans þannig að tryggja megi stöðugleika í starfinu, farsæld barna og velferð og vellíðan starfsfólks ásamt því að gera starfsumhverfi leikskólans aðlaðandi. Breytingarnar sem verða innleiddar í haust eru meðal annars að hámarksvistunartími barna verði 36 klst. á viku, tveir skráningardagar verða innleiddir vegna foreldraviðtala, vinnustytting starfsfólks verður tekin út með lokun skólans, fjórir dagar verða sérstaklega skilgreindir vegna undirbúnings leikskólastarfs og fimm starfsdagar á ári.

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Þátttaka í gerð skólanámskrár, ársáætlunar ásamt öðrum verkefnum undir stjórn leikskólastjóra.

· Þátttaka í stjórnun, skipulagningu og mati á starfsemi deildarinnar.

· Ábyrgð á deildarfundum ásamt upplýsingagjöf til starfsfólks.

· Samskipti, samvinna og upplýsingagjöf til foreldra/forráðamanna barna á deildinni.

· Umsjón með móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna deildarinnar.

· Samskipti og samvinna við aðrar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum.

· Ýmis önnur verkefni skv. starfslýsingu deildarstjóra hjá Kennarasambandi Íslands og sem leikskólastjóri felur deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

· Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.

· Góð íslenskukunnátta er skilyrði (á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum).

· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.

· Reynsla og þekking á starfi deildarstjóra og/eða leikskólastarfi.

· Reynsla af breytingastjórnun.

· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.

· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

· Skapandi hugsun og metnaður í starfi.

· Hæfni til að taka þátt í lærdómssamfélagi í þróun.

Við bjóðum upp á:

· Vinnustyttingu sem tekin er út með haustfríi, jólafríi og í Dymbilviku.

· Skipulagða undirbúningstíma utan deildar.

· Tímabundin viðbótarlaun (TV-einingar).

· Sveitarfélag aðstoðar við flutning og öflun húsnæðis fyrir fagfólk sem flytur til okkur.

· Tækifæri til símenntunar.

· Umfram allt skemmtilegan vinnustað.

Um framtíðarstarf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf ekki síðar en 5. ágúst 2025.

Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá. Umsóknir án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Allir einstaklingar sem ráðnir eru til starfa á Mánalandi þurfa að gefa heimild til upplýsingaröflunar úr sakaskrá. Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Mýrdalshrepps við ráðningu í starfið. Áhugasamir einstaklingar, óháð kynþætti, þjóðernisupprunna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu, eru hvattir til að sækja um. Karlmenn og kynsegin eru sérstaklega hvött til að sækja um í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan leikskólans, sbr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands við Félags leikskólakennara.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar um starfið veita Erla Jóhannsdóttir, leikskólastjóri ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi hjá Intellecta ([email protected]) í síma 511 1225.

Advertisement published12. May 2025
Application deadline4. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Mánabraut 3-5, 870 Vík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Teacher
Professions
Job Tags