
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni
Systurfyrirtækin Eirberg og Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf.
Eirberg ehf. er framsækið verslunar-, innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem hefur á að skipa þjónustumiðuðu starfsfólki. Markmið okkar eru að auka lífsgæði, efla heilsu, auðvelda störf og daglegt líf.
Verslun okkar hefur nokkra sérstöðu hvað vöruval og gæði snerta þar sem góð upplifun viðskiptavina er okkur mikilvæg.
- Við berum umhyggju fyrir vellíðan viðskiptavina okkar, hlustum og veitum góða þjónustu.
- Við njótum þess að mæta þörfum viðskiptavina okkar með góðri ráðgjöf og leggjum okkur fram við að hjálpa fólki að auka lífsgæði sín.
- Við mætum hverjum og einum viðskiptavini þar sem hann er og finnum í sameiningu leiðir sem gera viðskiptavininum kleift að njóta sín og eigin heilsu.
Systurfyrirækið Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. býður m.a. hjálpartæki, hjólastóla, heilbrigðisvörur og faglega ráðgjöf.
Þar starfa hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi og aðrir sérfræðingar í velferðartækni. Markmiðin eru að auðvelda fólki daglegt líf, styðja einstaklinga til sjálfshjálpar, auka vinnuvernd og hagræði.
Stuðlaberg er með samninga við Sjúkratryggingar Íslands m.a. um:
• Bað- og salernishjálpartæki
• Barna- og hjúkrunarrúm
• Gönguhjálpartæki
• Hjólastóla og hjálparmótora
• Viðgerðarþjónustu hjálpartækja
Stuðlaberg er með rammasamning við Fjársýslu Ríkisins m.a. um:
• Rafknúin Hjúkrunar- og Sjúkrarúm
• Náttborð
• Rúmgálga og Hliðarstuðning
• Flutningsbretti og Snúningsdiska
• Flutningssegl og Lyftara
• Loftfest lyftukerfi
• Sturtustóla
• Upphækkun á salerni
• Bekken og Þvagflöskur
• Göngugrindur
• Hjólastóla
• Hnakkastóla á hjólum
• Lyftihægindastóla
• Blöðruskanna og Lífsmarkamæla
• Krómvagna og Stálborð
• Rusla- og Taugrindur
• Tölvu- og Lyfjavagna
Söluráðgjöf Stuðlabergs á sviði stóma- og þvagleggja er sú viðamesta hér á landi og er í höndum hjúkrunarfræðinga sem hlotið hafa sérþjálfun framleiðenda. Veitt er persónuleg aðstoð við að finna hentugar vörur á þessu sviði.

Bókari
Óskum eftir bókara í 50-70% starf á skrifstofu okkar á Stórhöfða 25.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegt bókhald og afstemmingar
- Virðisaukaskattur, skil og eftirfylgni
- Umsjón með reikningum og greiðslum
- Afstemming banka og lánalína
- Stuðningur við mánaðaruppgjör og ársuppgjör
- Samskipti við banka, innheimtustofnanir og endurskoðendur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af bókhaldi fyrirtækja
- Góð kunnátta á Dynamics 365 Business Central bókhaldskerfi
- Góð þekking á VSK og íslensku skattumhverfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Nákvæmni og ábyrgð
- Góð samskiptafærni
Advertisement published13. March 2026
Application deadline27. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Stórhöfði 25, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
ReconciliationTech-savvyReliabilityFinancial statementsClean criminal recordMicrosoft Dynamics 365 Business CentralBillingConscientiousIndependencePlanningWrite upCertified bookkeeper
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

BÓKHALD - Ferðaskrifstofa
Eskimos Iceland

Sumarstarf á fjármálasviði
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf í móttöku og bókhaldi
Colas Ísland ehf.

Ráðgjafi hjá Expectus Finance
Expectus Finance

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Sumarstörf í bókhaldi og innheimtu hjá Festi hf.
Festi

Bókhald
Debet endurskoðun og ráðgjöf

Bókari/uppgjörsaðili
HSE Bókhald & Uppgjör ehf.

Sumarstarf í fjármáladeild
Bera hf.

Ert þú Excel týpa?
Beautybox

Almenn umsókn hjá Fagkaupum
Fagkaup ehf

Fulltrúi í bókhald - Sumarstarf
Íslandshótel