Steypustöðin
Steypustöðin
Steypustöðin

Bílstjóri í flotdeild

Steypustöðin óskar eftir að ráða starfsmann í flotdeild félagsins í Hafnarfirði. Um er að ræða tímabundna ráðningu í 6 mánuði. Ef þú hefur gaman af því að keyra, vinnur vel undir álagi og hefur góða öryggisvitund, þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.

Starfið felst að mestu leyti í akstri trailervagna með flot- og gólfílagningarefnum, auk þess að sinna dælingu á þessum efnum. Starfið er líkamlega krefjandi, svo viðkomandi þarf að vera líkamlega hraustur. Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að bætast í okkar teymi.

Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af akstri vörubifreiða með aftanívagn (trailer). Viðkomandi mun fá þjálfun við hæfi vegna vinnu við dælingu á efnum.

Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.

Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Akstur trailervagna með flot- og gólfílagningarefnum
  • Dæling á flot- og gólfílagningarefnum
  • Viðhald og eftirlit með tækjabúnaði
  • Vera vakandi yfir gæðum framleiðsluvöru
  • Bregðast við frávikum og tryggja örugga vinnuaðstöðu
  • Samvinna við aðra starfsmenn og þátttaka í teymisvinnu
  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meirapróf C og CE
  • Reynsla af akstri með aftanívagn
  • Líkamlega hraust/ur
  • Íslensku- og/eða enskukunnátta æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Samviskusemi og stundvísi
  • Reglusemi og snyrtimennska
Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Fjölbreytt verkefni
  • Hádegismatur
  • Námskeið og fræðsla
  • Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
Advertisement published13. February 2025
Application deadline23. February 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hringhella 2, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Driver's license CPathCreated with Sketch.Driver's license CEPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Punctual
Professions
Job Tags