
Tandur hf.
Fyrirtækið Tandur var stofnað í Reykjavík þann 9. ágúst 1973.
Starfsemi fyrirtækisins snýst um framleiðslu, sölu og dreifingu á hreinlætisvörum og búnaði til fyrirtækja og opinberra stofnana. Samhliða framleiðslu, sölu og innflutningi er mikil áhersla lögð á faglega og framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptaaðila.
Viðskiptavinum Tandur eru boðnar heildarlausnir varðandi þjónustu og vörur til hreinlætis. Má þar nefna gerð þrifaáætlana, uppsetningu sjálfvirkra skömmtunarbúnaða, reglulegt þjónustueftirlit, fræðslu, ráðgjöf og fjölda vöruflokka sem hafa með hreinsun og hreinlæti að gera.

Bílstjóri
Tandur hf. óskar eftir öflugum bílstjóra til starfa 🚚
Viltu vinna hjá framsæknu fyrirtæki sem leggur metnað í gæði, þjónustu og gott starfsumhverfi?
Við hjá Tandur hf. leitum eftir hraustum, samviskusömum og þjónustulunduðum bílstjóra til að ganga til liðs við teymi okkar. Starfið felst að mestu leyti í útkeyrslu á vörum til viðskiptavina.
Við hvetjum öll kyn að sækja um en kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Lestun, akstur og afhending á vörum til viðskiptavina Tandur hf.
- Áfylling hreinsiefna í gegnum dælubúnað hjá stórnotendum.
- Móttaka á skilavörum og umbúðum frá viðskiptavinum.
- Umsjón með daglegri umhirðu ökutækis
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
- Náið samstarf við starfsfólk lagers og vörumóttöku
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf
- ADR réttindi kostur
- Hreint sakarvottorð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Reynsla af vöruflutningum er æskileg
- Góð þjónustulund og samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og stundvísi
- Heiðarleiki og áreiðanleiki
- Reglusemi og snyrtimennska
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Heilsuræktarstyrkur
Advertisement published30. May 2025
Application deadline13. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Hestháls 12, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
Clean criminal recordDriver's licenceConscientiousDeliveryCargo transportation
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Meiraprófsbílstjóri óskast á Borganes / C driver in Borganes
Íslenska gámafélagið

Vörubílstjóri - trailer / dráttarbíll
Stéttafélagið ehf.

Alhliða störf í eignaumsýslu - Sumarstarf
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Bílstjórar og vélamenn
Heflun ehf

Við leitum að öflugum þjónustubílstjóra
Íslenska gámafélagið

Meiraprófsbílstjórar
Steinsteypan

Vagnstjóri / City Bus Driver
Almenningsvagnar Kynnisferða ehf

Meiraprófsbílstjóri óskast Sumarstarf/Framtíðarstarf.
Jarðtækni

Óskum eftir rútubílstjóra / framtíðarstarf
ME Travel ehf.

Kranabílstjóri
Steypustöðin

Finnst þér gaman að vakna snemma og keyra?
Lemon

Sumarstarfsmaður, trailerakstur
Gullvagninn ehf