
Apotek kitchen + bar
Apotek kitchen +bar er staðsettur á einu fallegasta horni Reykjavíkur í Austurstræti 16.
Við erum “casual/smart” staður þar sem boðið er upp á ljúffengar veitingar í líflegri stemningu og flottu umhverfi.
Matseðillinn er skemmtileg blanda af íslensku og evrópsku eldhúsi með funheitu argentísku grilli. Fjöldi smárétta er á matseðlinum sem mælt er sérstaklega með að gestir smakki og njóti saman.
Á Apotekinu er lifandi kokteilbar þar sem verðlaunaðir „apótekarar“ hrista saman spennandi kokteila – við allra hæfi – örvandi, róandi og jafnvel verkjastillandi.
Hönnun staðarins var í höndum Leifs Welding & Brynhildar Guðlaugsdóttur. Útgangspunkturinn var að halda heiðri hússins á lofti og gera byggingunni og sögu hennar hátt undir höfði. En á sama tíma að skapa nútímalegt, skemmtilegt og afslappað andrúmsloft. Langstærstur hluti húsgagna og innréttinga voru einnig hannaðir af tvíeykinu og smíðaðir á Íslandi.

Barþjónar & Þjónar í hlutastarf :)
Apotek kitchen + bar leitar að hressum og skemmtilegum þjónum og barþjónum í hlutastarf. Reynsla er æskileg en jákvæðni, vinnugleði og dugnaður er skilyrði. Leitum aðeins af fólki 18 ára og eldri. Please note that knowledge of Icelandic is required.
Advertisement published22. February 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Austurstræti 16, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Vaktstjóri í sal
Spíran

Hressir þjónar & barþjónar í hlutastarf :)
Sæta Svínið

Restaurant & Bar Supervisor
The Reykjavik EDITION

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Vaktstjóri Subway Fitjar - Shift leader Subway Fitjar
Subway

Hressir Þjónar í hlutastarf :)
Fjallkonan - krá & kræsingar

Starf í gestamóttöku og bar / Reception and bar
Hótel Akureyri

Verslunarstjóri - Fullt starf
Joe & the juice

Skapaðu eitthvað alveg nýtt í Færeyjum – Tubbak leitar að Sous Chef og Bar Manager
Hotel Hafnia

Viltu taka þátt í nýju og spennandi matarævintýri í Færeyjum?
Hotel Hafnia

Þjónar og barþjónar / Waiters and bartenders - Ylja Restaurant - Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

Gestgjafi þjónustu og upplifunar/Guest Experience Host
Laugarás Lagoon