Hjallastefnan
Hjallastefnan
Hjallastefnan

Barnaskólinn í Hafnarfirði - Umsjónarkennsla á yngsta stigi

Laus er 100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi við Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði frá 1. ágúst 2026.

Um er að ræða umsjónarkennslu með litlum hópi. Föst viðvera kennara er frá kl. 8:00-13:45 alla virka daga utan fundar frá kl. 14:00-15:30 einn dag í viku. Hjallastefnan er með kjarasamning við FG með ákvæði um aukna viðveru með börnum og fyrir það eru greiddir auka launaflokkar.

Í Barnaskólanum starfar einstaklega flottur og jákvæður hópur fólks og því leitum við að jákvæðum og lífsglöðum kennurum sem er tilbúnir að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þurfa að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi. Námsumhverfið er mjög lifandi þar sem sköpun er í fyrirrúmi því ekki er um bókastýrða kennslu að ræða.

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði er í einstaklega fallegu og skemmtilegu umhverfi með Víðistaðatúnið í bakgarðinum. Skólann sækja börn á aldrinum 5-9 ára. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjónarkennsla á yngsta stigi

Menntunar- og hæfniskröfur

Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi 

Fríðindi í starfi

Frír hádegismatur 

Advertisement published27. May 2026
Application deadline11. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Flexibility
Work environment
Professions
Job Tags