Polarn O. Pyret
Polarn O. Pyret
Polarn O. Pyret

Barnafataverslunin Polarn O. Pyret

Viltu vinna á líflegum vinnustað með góðu fólki?

Við erum að opna nýja fallega verslun eftir brunann í Kringlunni og leitum að jákvæðum, duglegum og glaðlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með okkur.

Um er að ræða 80-90% starf í Kringlunni. Starfið er fjölbreytt og felur í sér allar hliðar verslunarstarfa þar á meðal þjónustu við viðskiptavini, móttöku og framsetningu á vöru og afgreiðslu netpantana. Vaktir eru frá 10-17 og 12-18:30.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sölu og þjónustu
  • Rík þjónustulund, dugnaður og jákvæðni
  • Söluhæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Snyrtimennska og jákvætt og glaðlegt viðmót
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Æskilegt að umsækjandi sé 30 ára eða eldri

Við leggjum áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf. Við hlökkum til að fá umsóknina þína ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.

Ef þig vantar frekari upplýsingar sendu tölvupóst á polarnopyret.island@gmail.com

POLARN O. PYRET er sænskt vörumerki sem er leiðandi í hönnun og framleiðslu á vönduðum og umhverfisvænum gæðafatnaði á börn á aldrinum 0-11 ára. Fyrirtækið var stofnað árið 1976 og hefur verslunin í Kringlunni verið þar frá opnun eða í 37 ár. Merkið er þekkt fyrir gæði og eru vörur fyrirtækisins seldar í ótal verslunum víða um heim.

Advertisement published14. October 2024
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandicVery good
EnglishEnglishIntermediate
Location
Kringlan 8-12, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Customer checkoutPathCreated with Sketch.Non smokerPathCreated with Sketch.ShopifyPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Product presentationPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags