Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Akademísk staða á sviði fjármunaréttar

Lagadeild Háskólans í Reykjavík leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að sinna kennslu og rannsóknum. Stefnt er að því að viðkomandi sinni kennslu á sviði fjármunaréttar. Um er að ræða fjölbreytt starf með möguleika á því að móta rannsóknir og kennslu á þessu síbreytilega og mikilvæga sviði. Ráðið verður í stöðu háskólakennara, lektors, dósents eða prófessors í samræmi við hæfismat.

Starfssvið

Viðkomandi mun m.a.:

  • Sinna kennslu við lagadeild og koma að þróun á öflugu námsframboði
  • Taka þátt í mikilvægri uppbyggingu innan deildarinnar
  • Vinna að sjálfstæðum rannsóknum og leggja sitt af mörkum til fræðasamfélagsins
  • Leiðbeina nemendum í rannsóknarverkefnum og lokaritgerðum

Lagadeild HR leggur ríka áherslu á virkt samstarf innan og utan háskólans, þverfaglegt nám og rannsóknir auk miðlunar fræðilegrar þekkingar til samfélagsins. Starfið býður því upp á tækifæri til að hafa áhrif og marka sérstöðu á mikilvægu sviði innan lögfræðinnar.

Hæfnikröfur

  • Doktors- eða fullnaðarpróf í lögfræði
  • Reynsla af fræðiskrifum og kennslu á háskólastigi æskileg
  • Áhugi á nýjungum í kennslu og miðlun þekkingar til nemenda, fræðasamfélags og almennings
  • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og færni til að móta fræðasviðið
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu

Umsókn skal fylgja:

  • Starfsferilskrá og ritaskrá
  • Afrit af prófskírteinum
  • Yfirlit yfir birt ritverk
  • Yfirlit um fyrirhugaðar rannsóknir (e. research statement)
  • Yfirlit um fyrirhugaða kennslu og framtíðarsýn í kennslu (e. teaching statement)
  • Gögn til vitnis um árangur í kennslu
  • Nöfn og upplýsingar um a.m.k. tvo meðmælendur
  • Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill koma á framfæri

Umsóknir berist rafrænt í gegnum vef Háskólans í Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2025.

Allar nánari upplýsingar veitir Mannauðsdeild Háskólans í Reykjavík, [email protected] eða Gunnar Þór Pétursson forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, [email protected].

Advertisement published16. April 2025
Application deadline16. May 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Research papersPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags