
Aðstoðarverskstjóri – Tokyo Sushi (Krónan staðsetningar)
Ertu skipulögð/skipulagður, með auga fyrir smáatriðum og brennur fyrir gæðum í matargerð?
Tokyo Sushi óskar eftir traustum og áreiðanlegum aðstoðarverkstjóra til að styðja við reksturinn á okkar staðsetningum í Krónunni.
Um starfið
Sem aðstoðarverkstjóri munt þú vinna náið með rekstrarstjóra og tryggja góðan daglegan rekstur á mismunandi stöðum. Verkefni felast m.a. í:
-
Eftirliti með hreinlæti og umgengni á stöðum
-
Eftirliti með gæðum og ferskleika hráefna og matvæla
-
Samþykki vinnustunda starfsfólks og aðstoð við vaktaplönun
-
Starfið skiptist í skrifstofustörf og vinnu á mismunandi stöðum
-
Akstur á milli staða með bíl á vegum fyrirtækisins
-
Samskipti og samvinna við starfsfólk og stjórnendur
Við bjóðum upp á
-
100% starf: virka daga frá 08:00 til 16:00
-
Bíll í boði til að ferðast milli staða
-
Heitur matur / sushi í hádeginu
-
Sterkt og jákvætt vinnuumhverfi með yfir 150 starfsmönnum
-
Tækifæri til að vaxa með fyrirtæki sem hefur starfað í 14 ár á Íslandi
Við leitum að einstaklingi sem er
-
25 ára eða eldri
-
Talar og skrifar reiprennandi íslensku
-
Hefur góða samskiptahæfni á ensku
-
Er nákvæmur/nákvæm og áreiðanleg/áreiðanleg
-
Er liðsfélagi sem getur unnið sjálfstætt
-
Reynsla úr veitingarekstri er kostur













