
Krikaskóli
Krikaskóli tók til starfa í júní 2008. Fyrsta starfsárið voru börnin á aldrinum 2ja - 5 ára og skólinn til húsa við Gerplustræti í Helgafellshverfi. Næstu tvö árin þar á eftir fjölgaði börnunum stöðugt og börn á aldrinum 6- 9 ára hófu nám í Krikaskóla. Í Krikaskóla eru lýðræðislegir náms- og kennsluhættir bæði markmið og leið í senn. Lýðræðisleg gildi skólans eru þau sömu og Mosfellsbæjar; Ábyrgð, Framsækni, Virðing og Umhuggja.

Aðstoðarskólastjóri óskast í Krikaskóla
Aðstoðarskólastjóri óskast í Krikaskóla
Leitað er að metnaðarfullum og öflugum aðstoðarskólastjóra með sterka leiðtogahæfileika. Viðkomandi þarf að geta unnið vel í teymi, hafa skýra sýn á skólastarf og geta leitt faglegt starf í jákvæðu skólasamfélagi.
Krikaskóli er leik- og grunnskóli og starfsemin tekur mið af menntastefnu Mosfellsbæjar um heildstætt uppeldis- og skólastarf í leik- og grunnskólum. Á hverju ári eru um 200 börn á aldrinum 2ja-9 ára í skólanum.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Um 100% framtíðarstarf er að ræða.
Ráðið er í stöðuna frá og með 1.ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og daglegur rekstur ásamt skólastjóra
- Fagleg forysta á sviði kennslu og skólaþróunar
- Er staðgengill í fjarveru skólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
- Að Krikaskóli starfi samkvæmt viðeigandi lögum og reglugerðum, aðalnámskrá leik- og grunnskóla og menntastefnu Mosfellsbæjar
- Virkt og gott samstarf við alla aðila skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf
- Haldbær kennslureynsla á leikskólastigi
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Mjög góð íslenskukunnátta
Advertisement published14. April 2026
Application deadline30. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Sunnukriki 1, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
ProactivePositivityTeacherIndependenceTeam work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Forstöðumaður frístundar í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Kennara vantar við Eskifjarðarskóla
Eskifjarðaskóli

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof

Leikskólinn Eyrarskjól - Leikskólakennari/Leiðbeinandi
Hjallastefnan leikskólar ehf.

Deildarstjóri - Varmahlíðarskóli
Sveitarfélagið Skagafjörður

Skólastjóri Varmahlíðarskóla
Sveitarfélagið Skagafjörður

Lindaskóli óskar eftir dönskukennara skólaárið 2026-2027
Lindaskóli

Leikskólakennarar
Leikskólinn Jötunheimar

Leikskólasérkennari/Þroskaþjálfi
Leikskólinn Jötunheimar

Deildarstjórar
Leikskólinn Jötunheimar

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland