Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli

Aðstoðarskólastjóri Hörðuvallaskóla

Aðstoðarskólastjóri óskast í Hörðuvallaskóla.

Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs með möguleika á framlengingu.

Í Hörðuvallaskóla eru um 515 nemendur í 1.- 7. árgangi og um 90 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Gildi skólans eru virðing, heiðarleiki og þrautseigja.

Í Hörðuvallaskóla er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur og kennarar skólans með spjaldtölvur. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu, leiðsagnarnám og unnið er eftir samþættu verkefnamiðuðu þemanámi á miðstigi skólans. Unnið er eftir læsisstefnu skólans með áherslu á PALS og Byrjendalæsi. Skólinn er í innleiðingarferli að verða réttindaskóli UNICEF.

Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is .

Í skólanum er rekin frístund, Hörðuheimar, fyrir nemendur í 1.-4. bekk.

Leitað er að faglegum leiðtoga sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja framsækið skólastarf í samvinnu við aðra stjórnendur, starfsfólk, foreldra og nemendur. Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra og ber ábyrgð á og stjórnar daglegu starfi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Faglegur leiðtogi við framkvæmd skólastarfs og við innleiðingu á nýbreytni og/eða þróunarverkefnum.
  • Ber, ásamt skólastjóra, ábyrgð á skólastarfinu, daglegri stjórnun þess og rekstri skólans. 
  • Hefur umsjón með að unnið sé samkvæmt lögum, reglugerðum, aðalnámskrá grunnskóla og í samræmi við menntastefnu Kópavogsbæjar.
  • Vinnur að stefnumótun og áætlanagerð í samráði við skólastjóra.
  • Heldur utanum skólanámskrárvinnu, stundatöflugerð, starfsáætlun og innra mat skólans.
  • Tekur þátt í stjórnun mannauðsmála með skólastjóra, sinnir ráðningum og styður við starfsþróun starfsfólks.
  • Stuðlar að velferð og farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila innan og utan skólans í anda laga og verklags um farsæld barna.
  • Ber ábyrgð á móttöku á nýju starfsfólki og faglegri leiðsögn.
  • Stuðlar að góðu samstarfi í skólasamfélaginu, við foreldra, skólayfirvöld og nærsamfélagið.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennsluréttindi og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði.
  • Framhaldsmenntun (MA, M.Ed, MS, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar, kennslufræði, uppeldis- og menntunarfræða eða sambærilegra greina er skilyrði.
  • Reynsla af stjórnun, faglegri forystu og teymisvinnu á sviði kennslu og þróunar í grunnskólastarfi er skilyrði.
  • Þekking og reynsla af innra mati er kostur. 
  • Þekking og reynsla af teymiskennslu, leiðsagnarnámi, læsi og þematengdu þverfaglegu námi.
  • Lausnamiðað hugarfar og farsæl reynsla af úrlausn nemendamála og foreldrasamskiptum.
  • Hefur góða þekkingu og reynslu af móttöku á nýju starfsfólki og faglegri leiðsögn.
  • Þekking á rekstri og fjármálum kostur.
  • Góð þekking á upplýsingatækni og notkunar rafrænna miðla í skólastarfi.
  • Metnaður í starfi, sjálfstæði, drifkraftur og brennandi áhugi fyrir skólaþróun.
  • Leiðtogahæfileikar, samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Advertisement published4. June 2026
Application deadline18. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Baugakór 38, 203 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags