Furugrund
Furugrund
Furugrund

Aðstoðarmatráður óskast

Aðstoðarmatráður óskast til starfa í leikskólann Furugrund.

Í leikskólanum eru 97 börn. Í skólanum er unnið eftir jákvæðum aga og eru einkunnarorð skólans rauði þráðurinn í skólastarfinu en þau eru virðing, hlýja, öryggi og traust.

Aðstoðarmatráður sér meðal annars um að undirbúa og framreiða mat fyrir nemendur og starfsmenn skólans. Hann tekur þátt í uppvaski, frágangi og almennum þrifum í eldhúsi leikskólans. Einnig tekur hann þátt í að taka á móti og ganga frá vörum í eldhús og þvottahús auk þess að þvo þvott í leikskólanum.

Leikskólinn starfar í tveimur húsum og sér aðstoðarmatráður meðal annars um að flytja matarvagn milli húsa. Viðkomandi þarf að geta leyst matráð af eftir þörfum.

Um er að ræða rúmlega 85% stöðu með möguleika á afleysingarstöðu inni á deildum til að auka starfshlutfallið upp í allt að 100% starf. Vinnutími í eldhúsi er að lágmarki frá 9:00-15:30.

Upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðunni: http://furugrund.kopavogur.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við matseld og undirbúningur matar- og kaffitíma fyrir börn og starfsfólk.
  • Sér um uppvask.
  • Sér um þrif á eldhúsi samkvæmt þrifaáætlun – gólfþrif undanskilin.
  • Sér um þvotta, frágang og heldur þvottahúsi og vélum snyrtilegum.
  • Heldur kaffistofu starfsmanna snyrtilegri.
  • Í forföllum matráðs getur verið að viðkomandi þurfi að taka upp starfslýsingu matráðs 
  • Aðstoðar matráð við skipulag starfs í eldhúsi.
  • Sinnir öðrum þeim störfum sem yfirmaður felur honum.
  • Situr starfsmannafundi eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi í eldhúsi æskileg.
  • Áhugi og þekking á matreiðslu.
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum.
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og gott skipulag í vinnubrögðum.
  • Mjög góð íslenskunátta.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum Kópavogs. 

Advertisement published9. December 2025
Application deadline22. December 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Furugrund 3, 200 Kópavogur
Furugrund 1, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Kitchen workPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Flexibility
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags