Félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta

Aðstoðarmanneskja í eldhús Sögu hjá Félagsstofnun Stúdenta

Veitingasala Félagsstofnunar Stúdenta sér um veitingarekstur á háskólasvæðinu undir merkinu Háma og Kaffistofur Stúdenta.

Félagsstofnun Stúdenta leitar að aðstoðarmanneskju til starfa í eldhúsi Hámu sem staðsett er á Sögu. Viðkomandi sér um að aðstoða matreiðslumann við undirbúning, matseld og framreiðslu matar í eldhúsi Sögu. Starfið krefst að farið sé eftir reglum um matvælaöryggi og hreinlæti en unnið er samkvæmt HACCP gæðakerfi.

Um 100% starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun ágúst.

Vinnutími er frá 7-15 alla virka daga.

Eldhúsið á Sögu er lokað í júlí ár hvert.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða matreiðslumann við undirbúning, matreiðslu og framreiðslu máltíða samkvæmt matseðli.
  • Fylgja reglum heilbrigðiseftirlits um matvælaöryggi og hreinlæti og vinna samkvæmt HACCP gæðakerfi.
  • Tryggja að eldhús og vinnslurými séu ávallt hrein, snyrtileg og vel skipulögð.
  • Sinna innkaupum á hráefni, móttöku vara og frágangi birgða.
  • Aðstoða við afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini.
  • Taka þátt í öðrum tilfallandi verkefnum eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Matartæknir eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi í eldhúsi, mötuneyti eða sambærilegu starfi er kostur
  • Áhugi á matseld
  • Þekking á matvælaöryggi, hreinlæti og HACCP verklagi
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Ábyrgð, nákvæmni og samviskusemi
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Stundvísi og reglusemi
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi

Starfsfólk FS nýtur ýmissa fríðinda í formi íþróttastyrks og afslátta hjá Bóksölu Stúdenta, Stúdentakjallaranum og Hámu. 

FS er með virkt starfsmannafélag sem skipuleggur ýmsa viðburðir, þar á meðal árshátíðarferðir erlendis annað hvert ár.

Advertisement published29. April 2026
Application deadline15. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hagatorg Hótel Saga , 107 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Customer checkoutPathCreated with Sketch.Kitchen workPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags