Hlýja Tannlæknastofa
Hlýja Tannlæknastofa
Hlýja Tannlæknastofa

Aðstoðarmaður tannlækna

Hlýja tannlæknastofa í Álfheimum óskar eftir tanntækni eða aðstoðarmanni tannlækna. Um er að ræða fullt starf og er vinnutími 08:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga og 08:00-14:00 á föstudögum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Í boði er fjölbreytt starf í jákvæðu og faglegu starfsumhverfi. Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

Samskipti og þjónusta við viðskiptavini

Aðstoða tannlækna fjórhent við stól

Sótthreinsun og þrif á áhöldum og búnaði

Röntgenmyndatökur

Önnur tilfallandi störf á stofunni

Menntunar- og hæfniskröfur

Tanntækni- eða heilbrigðismenntun eða reynsla af vinnu á tannlæknastofu er kostur

Góð íslenskukunnátta

Hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu fljótt og vel

Rík þjónustulund

Frumkvæði og faglegur metnaður

Góð hæfni í mannlegum samskiptum

Advertisement published9. March 2026
Application deadline22. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Álfheimar 74, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags