Dalskóli
Dalskóli
Dalskóli

Aðstoðarforstöðumaður frístundaheimilis

Laus er til umsóknar staða aðstoðarforstöðumanns frístundaheimilisins Úlfabyggðar í Dalskóla.

Dalskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling í starf aðstoðarforstöðumanns frístundaheimilisins Úlfabyggðar sem er staðsett inni í skólanum. Dalskóli er samrekinn grunnskóli og frístundaheimili og er staðsettur í Úlfarsárdalnum.

Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska barna á aldrinum 6-9 ára með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni sem höfða til ólíkra barna með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggar aðstæður þannig að þeim líði vel í frístundaheimilinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Umsjón með dagslegum störfum starfsmanna og stýrir verkaskiptinu á milli þeirra í samráði við forstöðumann frístundaheimilisins.

- Er leiðbeinandi og veitir starfsmönnum leiðsögn og/eða tilsögn í framkvæmd vinnunnar.

- Stuðlar að jákvæðum og lýðræðislegum starfsháttum meðal starfsmanna og barna á frístundaheimilinu.

- Sér um skipulagningu, undirbúning og framkvæmd starfsins í samráði við forstöðumann, samstarfsfólk og þátttakendur í starfinu.

- Sér um að viðfangsefni á frístundaheimilinu stuðli að þroska barna og séu fjölbreytt, aldursviðeigandi og höfði til barna.

- Aðstoðar við að stýra starfsmannafundum á frístundaheimilinu.

- Tekur fullan þátt í starfi með börnum og starfsfólki á starfstíma frístundaheimilisins.

Menntunar- og hæfniskröfur

- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.

- Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.

- Reynsla af starfi með börnum.

- Reynsla af félags- og tómstundastarfi.

- Reynsla af samstarfi við grunnskóla og leikskóla er kostur.

- Skipulagshæfileikar og hæfni í samskiptum.

- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð.

- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi á frístundaheimili.

- Almenn tölvukunnátta.

Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Fríðindi í starfi

Reykjavíkurkort

Heilsuhlunnindi

Advertisement published4. June 2026
Application deadline18. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Úlfarsbraut 118-120 118R, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Ambition
Work environment
Professions
Job Tags