Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Aðstoðardeildarstjóri – Sóltún Sólvangi hjúkrunarheimili

Við leitum að hæfum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra til að styrkja okkar faglega teymi á hjúkrunarheimilinu Sóltún Sólvangi í Hafnarfirði. Starfið felur í sér ábyrgð á stjórnun hjúkrunar ásamt ábyrgð á þjónustugæðum og öryggi á deild. Um er að ræða framtíðarstarf í 100% starfshlutfalli í dagvinnu. Gott ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem vilja hefja sinn stjórnunarferil í stuðningsríku og hlýlegu umhverfi.

Við bjóðum upp á metnaðarfullt og fjölbreytt starf í faglegu og stuðningsríku umhverfi. Í Sóltúni Sólvangi starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks sem hefur mikinn metnað fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúanna.

Sóltún Sólvangi er hjúkrunarheimili í hjarta Hafnarfjarðar með 71 einstaklingsíbúð. Heimilið skiptist í heimilislegar einingar með 10–11 íbúum í hverri, þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu og virðingu fyrir einstaklingnum.

    Helstu verkefni og ábyrgð
    • Leiðir og skipuleggur hjúkrun á deild í samráði við deildarstjóra
    • Ber meginábyrgð á klínískum viðfangsefnum og þjónustu við íbúa í samræmi við kröfur um þjónustu á hjúkrunarheimilum
    • Tryggir gæði og samfellu í þjónustunni í samstarfi við deildarstjóra
    • Tekur þátt í fræðslu og kennslu fyrir nýtt starfsfólk og nemendur
    • Ber ásamt deildarstjóra ábyrgð á móttöku nýrra íbúa
    • Tekur þátt í teymisvinnu og RAI mati
    • Er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans
    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Íslenskt hjúkrunarleyfi
    • Góð klínísk færni og fagleg vinnubrögð
    • Hjúkrunarreynsla í öldrunarþjónustu kostur
    • Góð færni í verkefnastjórnun og teymisvinnu
    • Framhaldsnám í hjúkrun er mikill kostur
    Fríðindi í starfi
    • Íþróttastyrkur
    • Niðurgreiddur hádegismatur
    • Velferðartorg
    • Samgöngustyrkur
    Nánari upplýsingar

     veitir Fjóla Bjarnadóttir, forstöðumaður á tölvupóstfanginu [email protected]

    Advertisement published18. June 2026
    Application deadline22. June 2026
    Language skills
    IcelandicIcelandic
    Required
    Advanced
    Location
    Sólvangsvegur 2, 220 Hafnarfjörður
    Type of work
    Skills
    PathCreated with Sketch.NursePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Project management
    Professions
    Job Tags