LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Aðstoð í eldhúsi hjá LSR (50% starf)

LSR leitar að öflugri og jákvæðri aðstoðarmanneskju í eldhús sjóðsins. Í starfinu felst almenn aðstoð við rekstur eldhúss og mötuneytis LSR í nánu samstarfi við matráð. Vinnutími er að jafnaði milli kl. 10:00 og 14:00 alla virka daga. Mikill meirihluti starfsfólks LSR nýtir sér þjónustu eldhússins daglega en hjá sjóðnum starfa 67 manns.

Helstu verkefni og ábyrgð

Viðkomandi vinnur náið með matráði og tekur þátt í daglegum störfum eldhússins. Meðal verkefna eru:

•    Almenn aðstoð við matargerð og undirbúning (s.s. skurður, uppsetning, frágangur).
•    Uppsetning og frágangur í tengslum við hádegismat.
•    Uppvask og umsjón með búnaði.
•    Þrif og hreinlæti í eldhúsi og tengdum rýmum.
•    Aðstoð við vöruumsjón (t.d. móttaka vara, frágangur, einföld skráning/tiltekt).
•    Afleysingar fyrir matráð í fríum og við forföll.
•    Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum. 

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Reynsla af eldhússtörfum og/eða mötuneyti er æskileg. 
•    Vandvirkni, snyrtimennska og rík ábyrgðartilfinning.
•    Góð þjónustulund og hæfni í samstarfi.
•    Getur talað og skilið íslensku eða ensku.
•    Getur unnið sjálfstætt, sérstaklega við afleysingar.

Fríðindi í starfi

•    50% hlutastarf í skipulögðu og vinalegu vinnuumhverfi.
•    Skýrt skipulag og gott samstarf í litlu og samhentu teymi.
•    Fjölbreytt og hagnýt verkefni í daglegum rekstri eldhúss.

Advertisement published28. January 2026
Application deadline10. February 2026
Language skills
EnglishEnglish
Optional
Intermediate
IcelandicIcelandic
Optional
Intermediate
Location
Engjateigur 11, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.Kitchen workPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.Dish washingPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags