
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi er hluti af stærstu mannúðar- og hjálparsamtökum heims. Allt starf Rauða krossins miðar að því að bregðast við og aðstoða þar sem neyðin er mest.
Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans veita aðstoð og dreifa hjálpargögnum í hverju landi fyrir sig. Þannig tryggir Rauðakrosshreyfingin að hjálpin komist beint til skila til þeirra hópa sem mest þurfa á aðstoð að halda. Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans eru 190 en einungis eitt Rauða kross félag má starfa í hverju landi. Saman mynda Alþjóðaráð Rauða krossins, Alþjóðasambandið og landsfélögin, alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans.

Aðalbókari - tímabundið starf
Vilt þú vinna í fjármálateymi þar sem góð yfirsýn, nákvæmni og greinig skipta máli og styðja við mikilvægt mannúðarstarf?
Rauði krossinn á Íslandi leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi til starfa sem aðalbókari á fjármálasviði félagsins. Um er að ræða tímabundna stöðu til u.þ.b. sex mánaða. Starfshlutfall er 80-100%
Starfið er fjölbreytt og felur bæði í sér hefðbundin verkefni á sviði bókhalds og uppgjörs og vinnu við greiningar, afstemmingar og fjárhagsupplýsingar. Viðkomandi verður hluti af öflugu teymi og vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk innan félagsins.
Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með fjárhags-, launa- og viðskiptabókhaldi
- Umsjón með afstemmingum, árshlutauppgjörum og viðskiptayfirlitum
- Gerð ársreikninga og samstæðuársreiknings í samvinnu við fjármálastjóra og endurskoðanda
- Ábyrgð á þróun verkferla á Fjármálasviði og verkstjórn bókhaldsteymis
- Kerfisstjórn Unit4 bókhaldskerfis og aðstoð við notendur
- Ábyrgð á VSK uppgjörum
- Upplýsingagjöf og skýrslugerð til stjórnenda og starfsmanna
- Önnur tengd verkefni í samráði við fjármálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Próf í viðskiptafræði eða sambærileg menntun, menntun í reikningshaldi er kostur
- Hefur góða þekkingu og reynslu af bókhaldi
- Hefur mjög góða tölvukunnáttu og er fljótur að tileinka sér ný kerfi
-
Hefur góða færni í Microsoft Excel og áhuga á að nýta Excel við greiningar og úrvinnslu gagna
- Hefur gott talnalæsi og hæfni til að greina fjárhagslegar upplýsingar
- Vinnur nákvæmt og skipulega og hefur gott auga fyrir smáatriðum
- Getur unnið sjálfstætt, forgangsraðað verkefnum og fylgt þeim eftir
- Hefur góða samskipta- og samstarfshæfni
- Er lausnamiðaður og tilbúinn að leita leiða til að gera hlutina betur og einfaldar
- Sýnir frumkvæði og tekur ábyrgð á sínum verkefnum
- Hefur jákvætt viðhorf og leggur sitt af mörkum til góðrar liðsheildar
Advertisement published19. November 2026
Application deadline2. December 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags



