

3. og 4. árs hjúkrunarnemar - spennandi tækifæri á lungnadeild!
Ertu góður liðsfélagi og langar þig að starfa í spennandi starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?
Okkur vantar fleiri hjúkrunarnema í okkar góða lið á lungnadeild í Fossvogi. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði.
Lungnadeild er bráðalegudeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungnadeildin á landinu. Þjálfun og fræðsla er í fyrirrúmi á deildinni og mörg námstækifæri. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Starfsandi á deildinni er mjög góður og tekið vel á móti nýju samstarfsfólki. Við leggjum okkur fram við að þjónustan við skjólstæðinga okkar sé til fyrirmyndar, öryggi þeirra sé tryggt og að þeim sé sýnd hlýja og umhyggja.

















































