Dokkan
Dokkan
Dokkan

Uppsagnir og starfslok

Starfslok eru óumflýjanleg og þau geta borið að með ýmsum hætti.
Algengt er að starfslokum sé skipt í þrjá flokka

  • starfslok þegar starfsfólk segir sjálft upp
  • starfslok þegar vinnuveitandi / stjórnandi á frumkvæðið að starfslokunum
  • starfslok vegna persónulegra aðstæðna eða breytinga, s.s. vegna eftirlauna, náms, flutninga eða annað

Þegar frumkvæðið að starfslokunum kemur frá vinnuveitanda geta þau reynt mjög á og að mörgu að huga, hvort sem það snýr að framkvæmdinni sjálfri eða því sem gerist í framhaldinu. Samskipti og upplýsingagjöf til þeirra sem láta af störfum, stuðningur við þá sem áfram starfa o.fl.

Á námskeiðinu verður einnig fjallað um ýmis erfið starfsmannamál og hvernig hægt er að vinna með þau, með það að markmiði að bæta úr – en einnig hvað er æskilegt að gera leiði þau til starfsloka.

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:

  • lært um erfið starfsmannamál og hvernig má vinna með þau til að forða að til uppsagna komi
  • lært um hvað þarf helst að hafa í huga varðandi undirbúning uppsagnar, t.d. hvað varðar lög, kjarasamninga, stefnu vinnustaðar, umsýslu o.fl.
  • lært um hvað er mikilvægt að hafa í huga og passa upp á í uppsagnarsamtalinu sjálfu og framkvæmd þess
  • lært um hvað þarf að gera í framhaldinu af uppsögninni, bæði hvað varðar þann sem sagt var upp og þá sem áfram starfa – einnig áhrif á orðspor vinnustaðar ef ekki er vandað til verka í þessum efnum

 

Starts
4. Nov 2026
Type
On site
Timespan
1 times
Price
36,900 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories