
Iðan fræðslusetur

Undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf í stálsmíði
Námskeið sem styrkir verklega og fræðilega færni til að standast sveinspróf í stálsmíði.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem stefna á að þreyta sveinspróf í stálsmíði og vilja skerpa á helstu verklegum og bóklegum þáttum sem koma fyrir á prófi.
Markmið:
Að efla færni þátttakenda í helstu vinnuaðferðum og tækni stálsmíði ásamt því að undirbúa þá markvisst fyrir sveinspróf.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Verklega færni með teikningar og útflatninga
- Æfingar í pinnasuðu
- Æfingar í MIG/MAG-suðu
- Æfingar í TIG-suðu
- Æfingar í logsuðu
- Eldri próf og dæmi
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta lesið og túlkað teikningar og útflatninga
- Kunna að beita réttum vinnuaðferðum við mismunandi suðuaðferðir (pinna-, MIG/MAG-, TIG-, og logsuðu)
- Geta sýnt færni í meðhöndlun logsuðuverkfæra
- Þekkja helstu prófaform og verkefni sem koma fyrir á sveinsprófi
- Vera betur í stakk búinn til að standast sveinspróf í stálsmíði
Aðrar upplýsingar:
Nemendur eiga að hafa lokið stálsmíðanámi og ferilbók. Nemendur þurfa að vera í hlífðarfatnaði.
Starts
6. Aug 2026Type
On siteShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur