

Náðu árangri
Ert þú að leita að hvetjandi og skemmtilegum fyrirlestri um hvernig við getum orðið besta útgáfan af okkur sjálfum og aukið afkastagetu okkar í gegnum markmiðasetningu, jákvætt hugarfar og góða alhliða heilsu?
Í fyrirlestrinum Náðu Árangri mun Ásdís Hjálmsdóttir Annerud íslandsmethafi í spjótkasti tala um aðferðirnar sem hún nýtti sér til að komast á þrenna Ólympíuleika og klára doktorsnám á sama tíma. Fókusinn er á hvernig við getum fundið út hvaða útkomu við viljum fá, sett okkur markviss markmið til þess að komast þangað og þróað með okkur vinnings hugarfarið til þess að geta tekist á við pressu og mótlæti. Á þennan hátt getum við náð árangri á hvaða sviði sem er.
Fyrir hverja?
Alla þá sem vilja ná enn meiri árangri á hvaða sviði sem er með markvissri markmiðasetningu og góðu hugarfari.
Námskaflar og tími:
- Náðu árangri - 53 mínútur
53 mínútur
Textun í boði:
Íslenska
Leiðbeinandi:
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud er þrefaldur Ólympíufari í spjótkasti, frammistöðu ráðgjafi og fyrirlesari. Skýr draumur, markviss markmiðasetning og óseðjandi hungur í að gera stöðugt betur er ástæðan fyrir því að hún hefur náð langt í leik og starfi og brennur fyrir að hjálpa öðrum að dreyma stórt og ná árangri.