Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst

Masterklass - framsækni og örugg tjáning

Masterklass/vinnustofa fyrir þá sem vilja öfluga þjálfun í að koma fram af öryggi, ögra sér og taka þátt í ræðuhöldum, fundarstjórn, glærukynningum, tækifærisræðum og fleiri verkefnum. 

Námskeiðið er kennt í blöndu af staðnámi og fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur og kennsla hefst 26. maí og stendur til 3. júlí.

Nemendur fá tækifæri til að flytja ræður, taka þátt í málfundum, vera með útileiðsögn í náttúrunni, flytja tækifærisræður í hádegis-og kvöldverði, flytja glærukynningar í tíma, sjá um fundarstjórn, eða dómnefndarstörf. 

Markmiðið er að nemendur geti notið þess að standa fyrir máli sínu, samið og flutt ræður, stýrt fundum, stýrt dagskrá í útivist, hátíðarkvöldverði og við fleiri tækifæri. Að nemendur geti tjáð sig af öryggi í launaviðtölum, á vinnumarkaði og í félagsstarfi. Komi með kjarna málsins á hnitmiðaðan hátt, geti beitt virkri hlustun og haft jákvæð áhrif í hópastarfi og almennt í lýðræðissamfélagi.

Kennari námskeiðsins er Sirrý Arnardóttir. Hún á að baki 30 ára farsælan feril í fjölmiðlum þar sem hún stýrði m.a. útvarps- og sjónvarpsþáttum um árabil, ritstýrði tímariti, starfaði sem blaðamaður og við almannatengsl, svo eitthvað sé nefnt. 

Umsóknarfrestur er til 19. maí 

Starts
26. May 2026
Type
On site / remote
Price
89,900 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories