Dokkan
Dokkan
Dokkan

Mælingar á árangri mannauðsstjórnunar

Það er mikilvægt að geta sýnt fram á árangur faglegrar mannauðsstjórnunar í formi talna og í samhengi við rekstur vinnustaðarins.

Það er oft sagt að það sé erfitt að stjórna því sem ekki er hægt að mæla. En það er líka bara mjög mikilvægt að vera með tölurnar sínar á tæru, hvort sem það er í áætlanagerðinni, til að rökstyðja fjárþörf, eða til að sýna fram á að eiga erindið við borðið.

Markmið námskeiðsins

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:

  • Lært aðferðir til að reikna út ýmsa algenga og einfalda mannauðstölfræði
  • Lært nokkrar flóknari formúlur til að reikna út arðsemi mannauðsmála o.fl.
  • Lært hvernig má tengja betur saman mannauðstölfræðina og rekstrarniðurstöður vinnustaðarins
  • Lært hvernig má betur bera saman árangur mannauðsstjórnunar á milli vinnustaða og við samkeppnisaðila
  • Lært hvernig má tengja saman ólíkar tölur, úr mannauðsmálum, sölu, þjónustu, stjórnun o.fl. og nota það til að sjá skýrar orsakasamhengi á vinnustaðnum og sjá fyrir eigin trend
  • Búið sér til grunn að mannauðsmælaborði sem líklegt er að nái augum og eyrum fjármála- og forstjóra

Fyrir hverja?

  • Mannauðsstjóra
  • Fjármálastjóra
  • Forstjóra og framkvæmdastjóra
  • Mannauðssérfræðinga
Starts
9. Oct 2026
Type
On site
Timespan
1 times
Price
34,900 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories