Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Íslenska 5 | Icelandic 5

Á námskeiðinu heldur þú áfram að bæta við íslenskuþekkingu þína.

Þú eykur fjölbreyttan orðaforða og eflir sjálfstraustið til að nota íslensku á ýmsan hátt. Við leggjum áherslu á skilning, lestur, ritun og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.

Um námskeiðið

Námskeiðið Íslenska 5 er sérsniðið fyrir þig sem hefur lokið stigi 4 með góðum árangri.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja áfram upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, þ.e. lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.

Íslenska 5 er framhaldsnámskeið á stigi B 1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum  . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Heftið Íslenska fyrir 5. stig er notað, auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.

Áherslur

  • Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þörfum þínum.
  • Við leggjum áherslu á talþjálfun og að þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
  • Þú notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku.
  • Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
  • Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.
  • Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2, 3 og 4 (160 klukkustundir) eða sambærileg þekking.

Á fimmta stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

Frekari upplýsingar

Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.

Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.

Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].

Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

Starts
14. Sep 2026
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Mímir - símenntun
Spænska 1 og 2
Mímir - símenntun
On site15. Sep
Íslenska 1 fyrir pólskumælandi | Islandzki 1 A1.1
Mímir - símenntun
On site22. Sep
Íslenska talþjálfun 2-3 | Spoken Icelandic 2-3
Mímir - símenntun
On site28. Sep
Íslenska 1 fyrir spænskumælandi
Mímir - símenntun
Remote14. Sep
Íslenska 1 vaktavinna | Icelandic 1 f. shift work
Mímir - símenntun
Remote07. Sep
Icelandic 1 online (A1.1) | Íslenska 1 fjarnám
Mímir - símenntun
Remote18. Aug
Íslenska í leiksk. & fríst.|Icelandic f. childcare
Mímir - símenntun
Remote21. Sep
Íslenska í umönnun og hjúkrun | Icelandic in careg
Mímir - símenntun
Remote06. Oct
Íslenska 6 fjarnám | Icelandic 6 online (B1.2)
Mímir - símenntun
Remote22. Sep
Íslenska 5 fjarnám | Icelandic 5 online (B1.1)
Mímir - símenntun
Remote14. Sep
Íslenska 4 fjarnám | Icelandic 4 online (A2.2)
Mímir - símenntun
Remote14. Sep
Íslenska 4 kvöldnámskeið | Icelandic 4 (A2.2)
Mímir - símenntun
On site15. Sep
Íslenska 4 laugardagstímar | Icelandic 4 (A2.3)
Mímir - símenntun
On site12. Sep
Íslenska 3 kvöld | Icelandic 3 evening class
Mímir - símenntun
On site15. Sep
Íslenska 3 laugard. | Iceland 3 Saturday class
Mímir - símenntun
On site12. Sep
Íslenska 3 morgun | Icelandic 3 morning class A2.1
Mímir - símenntun
On site07. Sep
Íslenska 2 f. litháenskumælandi | Islandų kalba 2
Mímir - símenntun
On site14. Sep
Íslenska 2 síðd./kvöld | Icelandic 2 - pm
Mímir - símenntun
On site14. Sep
Íslenska 2 laugardagstími | Icelandic 2 Saturday
Mímir - símenntun
On site12. Sep
Íslenska 2 morguntími | Icelandic 2 (A1.2) morning
Mímir - símenntun
On site07. Sep
íslenska 2 fyrir spænskum. | Islandés 2 (A1.2)
Mímir - símenntun
On site02. Sep
Íslenska 2 f. víetn.mæl. | Tieng Iceland 2
Mímir - símenntun
On site01. Sep
Íslenska 1 f. víetn.mæl. | Icelandic 1 f. Vietnam
Mímir - símenntun
On site01. Sep
Íslenska 1 síðd./kvöld | Icelandic 1 -pm/evening
Mímir - símenntun
On site14. Sep
Íslenska 1 laugardagsnám | Icelandic 1 Saturday
Mímir - símenntun
On site12. Sep
Íslenska 1 - morgunnámskeið | Icelandic 1 morning
Mímir - símenntun
On site07. Sep