

Grjóthleðsla
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllum þeim er vilja læra hvernig hægt er að byggja úr grjóti. Hvort sem um ræðir veggi eða önnur smærri mannvirki.
Markmið:
Að kenna þátttakendum aðferðir við grjóthleðslu og beita þeirri þekkingu við endurreisn og viðhald hlaðinna veggja og tófta.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hefðbundnar íslenskar hleðsluaðferðir
- Áherslu á nákvæm vinnubrögð.
- Uppbyggingu hleðslna.
- Verkþekkingu sem hefur þróast í íslensku samfélagi í gegnum aldir.
- Efnisval, burðarvirki og samhengi við landslagið
- Að lesa í grjót, landslag og sögulegt samhengi mannvirkja
Að loknu námskeiði á nemandi að:
Þekkja hefðbundnar aðferðir við gróthleðslu og kunna að beita þeim.
Kunn að velja efni í grjóthleðslur í samræmi við umhverfið.
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er haldið af Fornverkum í Höfnum. Öll tæki og tól verða til staðar á svæðinu ásamt kaffaðstöðu. Þátttakendur mæta í vinnufatnaði í samræmi við veður. Boðið verður upp á hressingu yfir alla námskeiðis dagana.
Hafnir eru aldagamalt landnámssvæði sem hefur að geyma margar merkar minjar. Hluti af þessum minjum er gríðarlegt magn af fornum hleðslum og tóftum sem enginn kann deili á í dag.
Með þátttöku kennarans, Kristínar Auðar í Fornverki í Höfnum er tryggt að endurhlaðin mannvirki séu unnin í samræmi við fagleg og söguleg viðmið og að verkkunnátta í íslenskri grjóthleðslu sé miðluð áfram á vandaðan og ábyrgðan hátt.
Í lok hvers námskeiðs munu þátttakendur fá útskriftarplagg ásamt mynd af hópnum og þeirri hleðslu sem tókst að endurreisa.