

Gigt - hvað er til ráða?
Til eru yfir 200 mismunandi gigtarsjúkdómar en stór hluti þeirra er talinn vera tilkominn vegna sjálfsofnæmis. Aukin þekking á gigtarsjúkdómum hefur leitt til greiningar fyrr í sjúkdómsferlinu og betri meðferðar.
Á námskeiðinu verður fjallað um algenga gigtarsjúkdóma með áherslu á iktsýki, rauða úlfa, sóragigt, hrygggikt, fjölvöðvagigt og þvagsýrugigt. Þetta eru langvinnir sjúkdómar sem hafa áhrif á daglegt líf fólks, vinnugetu og andlega líðan. Tengsl eru á milli bólgusjúkdóma og aukinnar áhættu á ýmsum sjúkdómum t.d. hjarta- og æðasjúkdómum og beinþynningu. Farið verður ofan í ýmis einkenni gigtarsjúkdóma og hvað hægt sé að gera til að koma í veg fyrir skaða á liðum og líffærum. Einnig verður fjallað um helstu lyf sem notuð eru við þessum sjúkdómum.