

Gervigreind fyrir bókara – hagnýt vinnustofa
Þessi hagnýta vinnustofa er sérstaklega hönnuð fyrir bókara, starfsfólk bókhaldsstofa og fjármálafólk sem vill nýta gervigreind af öryggi og fagmennsku í daglegum störfum.
Þú lærir að nota gervigreind til að vinna hraðar, einfalda endurtekin verkefni og útbúa skýrari og vandaðri gögn – án þess að missa yfirsýn eða faglega ábyrgð.
Eftir vinnustofuna getur þú meðal annars:
• skrifað skýr fyrirmæli sem skila nákvæmum og nýtanlegum niðurstöðum
• yfirfarið reikninga og merkt atriði sem þarf að skoða nánar
• flýtt afstemmingum og undirbúningi mánaðarloka
• greint rekstrarfrávik og útbúið skýr drög að skýrslum
• búið til endurnýtanlegt verklag fyrir verkefni sem koma aftur og aftur
• nýtt íslenska bókhaldsþekkingu með Greind Þekkingartengingu
• unnið með viðkvæm gögn á öruggari og ábyrgari hátt
Vinnustofan fer fram tvo morgna, kl. 9:00–12:00, í Hygge í Borgartúni. Aðeins sex þátttakendur eru í hverjum hópi svo allir fái persónulega leiðsögn og tíma til að vinna raunveruleg verkefni.
Innifalið í verði:
• yfir 100 tilbúin fyrirmæli, verklag og sniðmát
• námskeiðsgögn og æfingar
• aðgangur að Greind Þekkingartengingu í sex mánuði
• morgunmatur, kaffi og meðlæti
Þátttakendur þurfa að hafa með sér fartölvu og áskrift að Claude eða ChatGPT. Engin sérstök tæknikunnátta er nauðsynleg.
Verð: 69.990 kr. með VSK.
Mörg stéttarfélög endurgreiða hluta námskeiðsgjaldsins.
Takmarkaður fjöldi – aðeins sex sæti á hverri vinnustofu.