Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ

Foreldraviðtalið - skýrleiki og traust

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukinn skilning á því hvaða þættir eru mikilvægir til að eiga gagnlegt samtal. Hvernig getum við sett okkur í spor þess sem við ræðum við og pössum upp á að gæta sálræns öryggis? Námskeiðið er hannað fyrir kennara sem vilja styrkja færni sína í samskiptum við foreldra í foreldraviðtölum. Einnig verður fjallað um hvernig á að takast á við gagnrýni á faglegan og uppbyggilegan hátt.

Foreldrasamtölin eru mismunandi og geta snúið að frammistöðu sem þarf að bæta, samskipti sem þarf að vinna með eða annað sem mikilvægt er að sé rætt og tengist velferð og árangri nemandans. Margir veigra sér svo við að ræða það sem er óþægilegt og á námskeiðinu er farið yfir hvernig við getum aukið hæfni kennara til að undirbúa sig og leiða samtöl á faglegan hátt með því að gefa þeim réttu verkfærin og tólin.

Námskeiðið byggir á aðferð markþjálfunar að hluta og eru aðferðir markþjálfunar dýrmæt tól sem hægt er að nýta í foreldraviðtölum til að auka áhrif og árangur samtalanna. Lögð er áhersla verklegar æfingar og hópavinnu þar sem þátttakendur deila reynslu sinni og fá rými til að spegla sig og fá endurgjöf.

Starts
13. Aug 2026
Type
On site
Timespan
1 times
Price
32,900 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories