
Iðan fræðslusetur

Ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda
Námskeið fyrir iðnaðarmenn, byggingarstjóra og aðra stjórnendur í byggingaframkvæmdum sem vilja þekkja ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið fyrir iðnaðarmenn og aðra stjórnendur í byggingaframkvæmdum sem vilja þekkja ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda.
Markmið:
Markmið með námskeiðinu er að upplýsa þátttakendur um hlutverk og skyldur iðnmeistara og byggingarstjóra við byggingarleyfiskyldar framkvæmdir og leiðbeina þeim í gegnum þær.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hlutverk einstakra aðila sem koma að framkvæmdum
- Umfangsflokkun mannvirkja
- Hvaða kröfur eru gerðar til byggingarstjóra í framkvæmdum á mismunandi umfangsflokkun
- Kröfur til iðnmeistara í framkvæmdum á mismunandi umfangsflokkun
- Byggingarleyfi og byggingarheimildir
- Eigin úttektir
- Áfangaúttektir byggingarstjóra
- Kröfur um brunaþéttingar
- Samskiptasamninga
- Yfirlýsingar iðnmeistara í lok verks
- Þjónustusamninga í lok verks
- Öryggis og lokaúttektir
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja ferli við byggingaframkvæmdir frá upphafi til loka
- Vita hverjar skyldur allra sem koma að mannvirkjagerð eru
- Geta gert samskiptasamninga við iðnmeistara
- Geta gert þjónustusamninga við þjónustuaðila
- Geta gert áhættugreiningar og nýtt þær við framkvæmdir
- Geta sett upp öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir framkvæmdir
Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur taki með sér tölvur til notkunar í stuttum verklegum æfingum.
Hlutverk byggingarstjóra og iðnmeistara eru viðmikil í byggingarleyfisskyldum framkvæmdum. Námskeiðið er hugsað til þess að þeir sem taka að sér þessi hlutverk séu betur að sér einstökum þáttum þess og séu því upplýstari um hvert það er og hvaða ábyrgð fylgir þeim.
Starts
18. Sep 2026Type
On siteTimespan
1 timesShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur
Áhættumat
Iðan fræðsluseturRemote21. Sep
Blágrænar ofanvatnslausnir
Iðan fræðsluseturOn site22. Sep
PAGO Byggingasteinar
Iðan fræðsluseturOn site23. Sep
Að fanga augnablikið
Iðan fræðsluseturOn site21. Sep
Lífsferilsgreiningar bygginga - LCA
Iðan fræðsluseturOn site16. Sep
Mannvirkjaskrá
Iðan fræðsluseturOn site17. Sep
Rakamælingar í byggingum
Iðan fræðsluseturOn site17. Sep
Læsa, merkja, prófa
Iðan fræðsluseturRemote15. Sep
Upprifjun fyrir sveinspróf í bifvélavirkjun
Iðan fræðsluseturOn site16. Sep
Áhættugreiningar í bygginga- og mannvirkjagerð
Iðan fræðsluseturOn site15. Sep
Masterclass í After Effects
Iðan fræðslusetur15. Sep
Heit vinna
Iðan fræðsluseturRemote14. Sep