Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Áhættugreiningar í bygginga- og mannvirkjagerð

Námskeið um greiningu á áhættu á byggingavinnustöðum. Kennari er Eyjólfur Bjarnason, byggingatæknifræðingur.

Fyrir hvern:

Námskeiðið er ætlað starfsfólki fyrirtækja í byggingariðnaði sem þarf að gera áhættugreiningar fyrir störf sem unnin eru innan fyrirtækisins.  

Markmið:

Að þátttakendur verði færir um að gera áhættugreiningar fyrir störf í bygginga- og mannvirkjagerð hvort sem um er að ræða störf á byggingarstað eða annars staðar. 

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Kröfur til fyrirtækja um gerð áhættugreininga fyrir störf í bygginga-og mannvirkjagerð.
  • Gerð verkferla og uppsetning þeirra.
  • Form til að gera áhættugreiningar og munu þáttakendur vinna með slíkt form.
  • Gerð fullbúninnar áhættugreiningar sem nýtist við rekstur öryggismála og verklegar framkvæmdir. 

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja þær kröfur senm gerðar eru varðandi áhættugreiningu fyrirtækja í bygginga-og mannvirkjagerð
  • Kunna að gera verkferil fyrir áhættugreiningu á tilskildu formi.
  • Geta unnið áhættugreiningu sem nýtist við rekstur öryggismála og verklegar framkvæmdir.
Starts
18. Mar 2026
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories