Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Ábyrgð byggingastjóra

Námskeið er fyrir þau sem ætla sér að öðlast starfsleyfi byggingarstjóra skv. grein 4.7.3 í byggingarreglugerð.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir þau sem ætla sér að öðlast starfsleyfi byggingarstjóra skv. grein 4.7.3 í byggingarreglugerð.

Markmið:

Markmið þess er að upplýsa þátttakendur um ábyrgð sína og skyldur sem byggingarstjórar.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Byggingarleyfi og önnur samskipti sem byggingarstjóri þarf að eiga við byggingaryfirvöld.
  • Hlutverk og ábyrgð byggingarstjóra við verkframkvæmdir og meðhöndlun uppdrátta
  • Lög, reglugerðir, tryggingar og tryggingaslit.
  • Gildi og framkvæmd úttekta, s.s. áfanga-, fokheldis-, stöðu- og lokaúttekta.
  • Gæðakerfi byggingarstjóra.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja hlutverk og ábyrgð byggingastjóra við verklegar framkvæmdir.
  • Gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir starfinu.
  • Geta öðlast starfsleyfi byggingarstjóra að uppfylltum öðrum skilyrðum skv. kröfum mannvirkjalaga og byggingareglugerðar.

Annað:

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Starts
18. May 2026
Type
On site / remote
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories