Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Vinnustaðurinn
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun var stofnuð 1. janúar árið 2020 við sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar. Sameiningin átti að stuðla að heildstæðri yfirsýn yfir húsnæðisog mannvirkjamál á einum stað ásamt því að efla stefnumótun og framkvæmd húsnæðis- og mannvirkjamála til hagsbóta fyrir almenning. Hlutverk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi með því að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með gæðum, öryggi og heilnæmi. Að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði og tryggja almenningi aðgengi að viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði, hvort sem er til eignar eða leigu. Hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun starfar öflugur hópur starfsfólks með fjölbreytta reynslu og þekkingu. Stofnunin hefur aðsetur á tveimur stöðum, annars vegar í Borgartúni í Reykjavík, þar sem starfa rúmlega 80 starfsmenn og hins vegar á Sauðárkróki þar sem starfa rúmlega 20 starfsmenn. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélaga. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar má finna á: www.hms.is
Ártorg 1, 550 Sauðárkrókur
Nýjustu störfin

Engin störf í boði