Þjónustustjóri
MyCar leitar að öflugum aðila til þess að stýra upplifun viðskiptavina og þjónustu bílaleigu í miklum vexti.
Við bjóðum upp á fjölbreytt verkefni og skemmtilegar áskoranir í hröðu starfsumhverfi.
Ef þú brennur fyrir það að veita framúrskarandi þjónustu og vilt vera hluti af metnaðarfullu teymi þá er þetta tækifærið fyrir þig.
• Móta upplifanir viðskiptavina, frá bókun til skila
• Dagleg umsjón með þjónustusviði
• Yfirmaður þjónustumála og ábyrgð á útibúum
• Þróun þjónustu og uppbygging ferla
• Áætlanagerð og eftirfylgni með lykilmælikvörðum
• Þróun, framkvæmd og eftirfylgni áætlunar í þjónustumálum
• Meðhöndlun og greining á gögnum
• Þjálfun starfsmanna
• Móta jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi sem nær því besta út úr teyminu
• Yfir fimm ára reynsla af þjónustu
• Háskólamenntun er kostur
• Grunnþekking á Microsoft Excel er skilyrði
• Reynsla af verkefnastjórnun, hóp- eða deildarstjórnun er kostur
• Reynsla úr ferðaþjónustu er kostur
• Þekking á Caren eða öðrum sambærilegum kerfum er kostur
• Skipulagshæfni
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Geta til að vinna í hröðu og lifandi markaðsumhverfi
• Sterk samskiptahæfni og áhugi á teymisvinnu