Sölu- og Markaðsstjóri
MyCar leitar að öflugum aðila til þess að stýra sölu- og markaðsmálum bílaleigu í miklum vexti.
Við bjóðum upp á fjölbreytt verkefni og skemmtilegar áskoranir í hröðu starfsumhverfi.
Ef þú brennur fyrir sölu- og markaðsmálum og vilt vera hluti af metnaðarfullu teymi þá er þetta tækifærið fyrir þig.
• Samskipti við sölunet
• Samskipti við markaðsstofur
• Skipulag markaðsefnis
• Uppbygging og stefnumótun
• Markaðsgreiningar
• Meðhöndlun og túlkun á gögnum
• Áætlanagerð og eftirfylgni með lykilmælikvörðum
• Verðstýring í samstarfi við framkvæmdastjóra
• Sókn á nýja markaði
• Þróun, framkvæmd og eftirfylgni áætlunar í sölu- og markaðsmálum.
• Ábyrgð á vörumerkjum félagsins sem felur í sér verkefni tengd upplifun viðskiptavina, svo sem uppsetning vefsíðu
• Móta jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi sem nær því besta út úr teyminu.
• Tveggja ára reynsla af markaðsstarfi skilyrði
• Háskólamenntun á sviði viðskipta- og/eða markaðsfræða eða skyldum greinum
• Grunnþekking á Microsoft Excel er skilyrði
• Þekking á Google Ads og Google Analytics er kostur
• Þekking á markaðssetningu á samfélagsmiðlum er kostur
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Geta til að vinna í hröðu og lifandi markaðsumhverfi
• Sterk samskiptahæfni og áhugi á teymisvinnu