Garðabær
Garðabær
Garðabær

Sjálandsskóli óskar eftir umsjónarkennara á miðstig

Sjálandsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á miðstig í fullt starf frá 1. ágúst 2024. Um er að ræða afleysingu í eitt ár.

Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru 250 nemendur og starfsmenn eru um 60. Í Sjálandsskóla ríkir góður starfsandi þar sem allir starfsmenn vinna saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Aðstaða nemenda og starfsfólks er til fyrirmyndar.

Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag náms og kennslu nemenda á miðstigi
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
  • Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Teymisvinna
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi á skólaþróun
  • Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg
Auglýsing stofnuð6. maí 2024
Umsóknarfrestur3. júní 2024
Staðsetning
Langalína 8, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar