Garðabær
Garðabær
Garðabær

Sjálandsskóli óskar eftir dönskukennara á unglingastig

Sjálandsskóli auglýsir eftir kennara í dönsku í 8.-10. bekk í 30% starf.

Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ. Í skólanum eru 250 nemendur og starfsmenn eru um 60. Í Sjálandsskóla vinna allir starfsmenn saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi.

Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur nám og kennslu í dönsku í 8.-10. bekk
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
  • Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu á unglingastigi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Lágmark 90 námseiningar á einu sviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á skólaþróun
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum/ungmennum er æskileg
Auglýsing stofnuð6. maí 2024
Umsóknarfrestur3. júní 2024
Staðsetning
Langalína 8, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar