VÍS
VÍS
VÍS

Forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta

Ert þú leiðtoginn sem við leitum að?

Við leitum að öflugum leiðtoga í stjórnendateymi VÍS til að leiða fyrirtækjaviðskipti, teymi sem sinnir framúrskarandi viðskiptastýringu, sölu og þjónustu við fyrirtæki um land allt.

Hlutverk fyrirtækjaviðskipta er að bera ábyrgð á nýsölu og endurnýjun fyrirtækja en einnig að sinna samstarfi á sviði forvarna hjá fyrirtækjum.

Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á sölu og að rækta og viðhalda langtíma viðskiptasamböndum.


Saman ætlum við að vera leiðandi í sölu og þjónustu um land allt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á sóknartækifærum á fyrirtækjamarkaði
  • Ábyrgð á viðskiptastýringu, ráðgjöf, sölu og þjónustu við fyrirtæki
  • Leiða umbótastarf sem færir þjónustu við fyrirtæki yfir í stafrænar lausnir
  • Móta jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi og leiða hóp starfsmanna í átt að markmiðum
  •  Ábyrgð á forvarnarsamstarfi við fyrirtæki
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni
  • Þekking og reynsla af viðskiptastýringu á fyrirtækjamarkaði
  • Umtalsverð reynsla af stjórnun
  • Þekking og skilningur á rekstri fyrirtækja og atvinnulífinu
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Fríðindi í starfi
  • Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
  • Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
  • Nýsköpunarumhverfi því við elskum hugrekki
  • Fyrirtæki sem hugsar til framtíðar með því að leggja áherslu á sjálfbærni
  • Tækifæri til þess að vaxa og dafna bæði í lífi og starfi 
Auglýsing stofnuð19. apríl 2024
Umsóknarfrestur2. maí 2024
Staðsetning
Ármúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar