Eimskip
Eimskip
Eimskip

Rafvirki /rafvélavirki

Eimskip óskar eftir að ráða rafvirkja eða rafvélavirkja til framtíðarstarfa á rafmagnsverkstæði Eimskips í Sundahöfn.

Í boði er fjölbreytt og áhugavert starf við fyrsta flokks vinnuaðstæður.

Um er að ræða fullt starf á tvískiptum vöktum þar sem unnið er alla virka daga. Aðra vikuna er unnið frá kl. 07:00 – 16:00 og hina vikuna frá kl. 16:00 – 01:00.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn raflagnavinna, viðhald og nýlagnir
  • Viðhald tækja og búnaðar
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun eða rafvélavirkjun
  • Reynsla af viðgerðum á lyfturum og frystikerfum er kostur
  • Reynsla af stýrisbúnaði og raflögnum er kostur
  • Íslenskukunnátta er skilyrði
  • Góð þjónustulund og jákvæðni
Fríðindi í starfi
  • Gott mötuneyti og matur niðurgreiddur fyrir starfsfólk
  • Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðsvegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira
Auglýsing stofnuð29. apríl 2024
Umsóknarfrestur12. maí 2024
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.RafvélavirkjunPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar