Þ. Þorgrímsson & Co.
Byggingavöruverslunin Þ. Þorgrímsson & Co. var stofnuð á vormánuðum árið 1942 af Þorgrími Þorgrímssyni stórkaupmanni f. 1924 – d. 2012.
Á fyrstu árum fyrirtækisins mótaðist innkaupastefna þess mest af þeim vörum sem voru fáanlegar á stríðstímanum hverju sinni.
Snemma var þó stefnan mörkuð vegna mikils skorts á byggingavörum í landinu eftir stríð. Helstu viðskiptalönd voru Bandaríkin, Spánn og England.
Í dag þjónustar fyrirtækið byggingamarkaðinn með sölu og þjónustu á hverskonar byggingavörum til klæðninga á loftum, gólfum, veggjum innanhúss
og utan á húsið. Má þar helst nefna utanhússkæðningar,þakefni, eldvarnarplötur, glugga og útihurðir.
Einnig sérhæfir fyrirtækið sig í hljóðeinangrun fyrir híbýli verslanir, skrifstofur og iðnaðinn jafnframt hitaeinangrun fyrir frystiiðnaðinn. Auk þess er starfrækt véladeild fyrir byggingaiðnaðinn og margt fleira.
Lagerstjóri
Þ. Þorgrímsson & Co óskar eftir að ráða drífandi og skipulagðan lagerstjóra til starfa. Um fjölbreytt og skemmtilegt framtíðarstarf er að ræða á samheldnum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Yfirumsjón og ábyrgð á lager og verkstæði
- Samantekt pantana og eftirfylgni
- Umsjón með viðgerðum og öðrum erindum í tengslum við pantanir
- Þátttaka í umbótaverkefnum
- Samskipti við viðskiptavini og góð samvinna með innkaupastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Mikil skipulagshæfni, nákvæmni og umbótasinnuð hugsun
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, sveigjanleiki og þjónustulund
- Áhugi og/eða kunnátta á minniháttar viðgerðum er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Lyftarapróf eða önnur vinnuvélaréttindi kostur
Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur20. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Ármúli 29, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Bananar leita að Bílstjórum - bæði í sumar og framtíðarstarf
BANANAR
Lagerstarf
Forlagið ehf
Bókari
Dynjandi ehf
Lagerstarfsmaður óskast.
Parki
Liðsauki í vöruhús
Ískraft
Rekstrarstjóri - Vöruhús Ískraft
Ískraft
Sölumaður
Góa-Linda sælgætisgerð
Afgreiðslu- og lagerstarfsmaður
BYKO Leiga og fagverslun
Sala og afgreiðsla
Vatnsvirkinn ehf
Vöruhús Vatnsvirkjans ehf.
Vatnsvirkinn ehf
Vantar þig gott sumarstarf!
Valeska ehf
Bílstjóri Sumarstarf - Garðabær
DHL Express Iceland ehf