Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Kennari í sérdeild - Lækjarskóli

Lækjarskóli auglýsir eftir kennara í sérdeild í 100% starf

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru um 450 talsins. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.

Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með fjögur meginmarkmið: Samstarf heimils og skóla, heilbrigði og vellíðan, aukinn árangur nemenda og altæka hönnun náms (UDL).

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.

Fyrir nokkru hófst innleiðing á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna kennslu í sérdeild í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Áhugi og/eða reynsla af sérkennslu
  • Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
  • Færni í gerð sjónræns skipulags kostur
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
  • Víðtæk tölvukunnátta
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Stundvísi og samviskusemi

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Dögg Gunnarsdóttir, skólastjóri í síma 6645877 dogg@laekjarskoli.is eða Arna B. Arnardóttir, aðstoðarskólastjóri, arna@laekjarskoli.is

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024

Umsóknarfrestur er til og með 17. maí

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur17. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Sólvangsvegur 4, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar