Expectus
Expectus
Expectus

Sérfræðingur í viðskiptagreind (BI)

Ef þú skilur virði gagna og mikilvægi þeirra til ákvarðanatöku og árangurs í rekstri þá átt þú heima hjá Expectus. Sérfræðingar okkar aðstoða daglega stærstu fyrirtæki landsins í að móta og innleiða gagnadrifna menningu og hámarka þannig mælanlegan árangur þeirra.

Starfið felst meðal annars í ráðgjöf við viðskiptavini og uppbyggingu viðskiptagreindarumhverfis eftir fremstu og bestu aðferðarfræðum hverju sinni. Með réttu undirstöðunum aðstoðum við þannig okkar viðskiptavini við að taka gagnadrifnar ákvarðanir í sínum rekstri.

Sérfræðingar hjá Expectus búa við talsverða fjölbreytni og hafa möguleika á að hafa mikil áhrif á sérhæfingu sína og þróun í starfi. Engir tveir dagar eru eins hjá Expectus!

Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti við viðskiptavini til að meta þarfir og umbreyta þeim yfir í tæknilausnir til framtíðar
Hönnun og uppbygging á mælaborðum til greiningar á stjórnendaupplýsingum
Skipulagning, hönnun og innleiðing á viðskiptagreindarlausnum (BI, Data & Analytics) hjá viðskiptavinum
Þjónusta við núverandi viðskiptavini á okkar lausnum sem eru í rekstri hjá þeim
Innleiðing á rauntímaeftirliti á viðskiptaferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf í verkfræði, tölvunarfræði eða sambærileg menntun
Þekking í gagnagrunnsforritun (s.s. SQL)
Góð þekking á Excel
Þekking á PowerBI og Tableau er kostur
Þekking á skýjaumhverfi, sér í lagi Azure, er kostur
Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og vilji til að miðla þekkingu
Skapandi hugsun og hugmyndaauðgi ásamt hæfni til að koma hugmyndum sínum á framfæri
Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
Löngun til að vaxa í starfi og læra eitthvað nýtt
Hreint sakavottorð og ökuréttindi
Fríðindi í starfi
Hressilegt félagslíf og mjög virkt starfsmannafélag
Hádegisverður, snarl og drykkir á skrifstofunni
Sveigjanlegur vinnutími
Möguleiki á að byggja upp sterkt tengslanet
Íþrótta- og tækjastyrkur
Auglýsing stofnuð27. febrúar 2023
Umsóknarfrestur26. mars 2023
Staðsetning
Vegmúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar