KAPP ehf
KAPP ehf
KAPP ehf

Starfsmaður á renniverkstæði KAPP Skaginn Akranesi

Starf starfsmanns á renniverkstæði KAPP á Akranesi snýr að því að tryggja örugga, faglega og skilvirka framleiðslu á vélhlutum og íhlutum samkvæmt teikningum, gæðakröfum og framleiðsluáætlun félagsins.

Kjarni starfsins snýr að framleiðslu vélhluta samkvæmt teikningum og forskriftum með notkun Haas CNC rennibekkja og fræsivéla.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni starfsins eru 

  • Uppsetning og keyrsla á Haas CNC rennibekkjum 

  • Lesa og túlka framleiðsluteikningar 

  • Verkfærauppsetningar, stillingar, mælingar og gæðaeftirlit 

  • Daglegt viðhald og eftirlit með vélbúnaði 

  • Starfsmaður tryggir að öryggisreglur og verklag séu ávallt virt  

  • Starfsmaður veitir tæknilega ráðgjöf innan fyrirtækisins og styður við þróunarverkefni

Starfsmaður ber ábyrgð á eftirfarandi þáttum 

  • Öruggri og faglegri notkun Haas CNC rennibekkja og annars framleiðslubúnaðar félagsins

  • Að framleiddir íhlutir uppfylli teikningar, forskriftir og gæðakröfur félagsins

  • Uppsetningu, stillingum, mælingum og vali verkfæra fyrir framleiðsluverkefni

  • Tilkynna frávik í framleiðslu, teikningum eða efnisgæðum án tafar

  • Góðri nýtingu hráefnis, verkfæra og framleiðslutíma

  • Daglegu eftirliti með ástandi véla og að tilkynna viðhaldsþörf

  • Að viðhalda snyrtilegu og öruggu vinnuumhverfi samkvæmt reglum félagsins

  • Stuðla að stöðugum umbótum í framleiðsluferlum, uppsetningum og vinnubrögðum

  • Stuðla að því að framleiðsluáætlanir standist og að afhendingar verkefna fari fram á réttum tíma

  • Að öryggis-, gæða- og umhverfisreglum félagsins sé fylgt í hvívetna

  • Búa til, breyta og viðhalda CNC forritum fyrir Haas rennibekki

  • Tryggja að CNC forrit séu skjalfest, vistuð og aðgengileg samkvæmt verklagi félagsins

  • Hámarka vinnsluferla með tilliti til afkasta, gæðakrafna og nýtingar véla

  • Leiðbeina og þjálfa nýja starfsmenn í notkun CNC véla og framleiðsluferlum

  • Taka þátt í mati á nýjum verkfærum, búnaði og framleiðsluaðferðum

  • Veita tæknilega ráðgjöf innan framleiðslusviðs eftir þörfum

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rennismíði, vélvirkjun eða sambærileg menntun

  • Reynsla og þekking á uppstillingum og forritun rennibekkja CAM

  • Þekking á Autodesk forritum, Inventor og Fusion 
  • Góð þekking á Haas stjórnbúnaði er kostur

  • Þekking á lestri framleiðslu- og vélateikninga

  • Reynsla af mælitækjum og gæðaeftirliti

  • Þekking á málmvinnslu og vinnsluferlum

  • Góð tölvukunnátta

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Frumkvæði og ábyrgðartilfinning

  • Góð samskiptahæfni og hæfni til teymisvinnu

  • Færni í íslensku eða ensku

Auglýsing birt9. júní 2026
Umsóknarfrestur23. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Bakkatún 30, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar