Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Starfsmaður á heimili fatlaðs fólks

Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsfólki, 18 ára eða eldri, til starfa á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi. Markmið þjónustu við fatlað fólk hjá Kópavogsbæ er að veita persónulegan stuðning og einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu sem skal tryggja fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra íbúa bæjarins.

Um er að ræða 70% vaktavinnu á blönduðum vöktum. Um tímabundna ráðningu er að ræða með möguleika á áframhaldandi starfi

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
  • Vera góð fyrirmynd.
  • Stuðla að sjálfstæði íbúa.
  • Almenn heimilisstörf.
  • Samvinna við samstarfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
  • Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg.
  • Framtakssemi, frumkvæði og jákvætt viðhorf í starfi.
  • Starfað er í anda þeirra meginhugmynda er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks.
  • Bílpróf er kostur.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sundlaugar Kópavogs

Auglýsing birt13. febrúar 2025
Umsóknarfrestur2. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar