Mosfellsbær- Einstaklingsstuðningur
Mosfellsbær- Einstaklingsstuðningur

Skemmtilegt starf í einstaklingsstuðning

Skemmtilegt starf í einstaklingsstuðning

Erum við að leita að þér?

Við leitum eftir drífandi og líflegum starfskrafti sem hefur mikinn áhuga á samskiptum og að vinna með fólki. Mjög skemmtilegt og gefandi starf.

Velferðarsvið Mosfellsbæjar veitir fötluðum börnum, ungmennum og fullorðnu fólki einstaklingsstuðning.

Markmið einstaklingsstuðnings er að efla viðkomandi til sjálfshjálpar, veita persónulegan stuðning og aðstoð sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun. Má þar t.d nefna að fara á menningarviðburði, taka þátt í tómstundum, hreyfingu eða félagslífi.

Um fjölbreytt tímabundin hlutastörf er að ræða og er vinnutíminn sveigjanlegur. Starfið gæti því meðal annars hentað vel fyrir námsmenn eða fólk sem vill auka við sig vinnu.

Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk nr. 38/2018.

Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun.

Menntunar- og hæfniskröfur
Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
Þjónustulund og jákvæðni í starfi
Hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
Hreint sakarvottorð
Aldursskilyrði 18 ár
Auglýsing birt9. janúar 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar