Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafar á Blönduhlíð

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?

Barna- og fjölskyldustofa óskar eftir að ráða ráðgjafa á Blönduhlíð, meðferðarheimili fyrir unglinga. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í 100% stöðu í vaktavinnu sem heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umönnun og gæsla unglinga.

  • Einstaklingsbundinn stuðningur við unglinga í samvinnu við deildarstjóra, verkefnastjóra, sálfræðinga og forstöðumann.

  • Meðferðarvinna og vinna að tómstundastarfi með unglingum.

  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.

  • Vinna eftir verklagsreglum.

  • Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. í meðferðar-, tómstunda-, íþróttastarfi eða öryggisgæslu.

  • Góð færni í mannlegum samskiptum.

  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.

  • Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.

  • Gild ökuréttindi.

  • Einnig er lögð áhersla á aðra persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.

Auglýsing birt7. nóvember 2025
Umsóknarfrestur17. nóvember 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar