Akureyri
Akureyri
Akureyri

Oddeyrarskóli á Akureyri: Húsvörður

Laus er til umsóknar 100% staða húsvarðar í Oddeyrarskóla. Um ótímabundna ráðningu er að ræða. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.

Í Oddeyrarskóla vinnum við saman að því að skapa skólasamfélag sem nær árangri. Það einkennist af jákvæðum skólabrag, áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum. Oddeyrarskóli er heilsueflandi grunnskóli. Unnið er eftir hugmyndafræði SMT og eru einkunnarorð skólans ábyrgð, virðing og vinátta. Oddeyrarskóli er við Víðivelli á Akureyri og er fjöldi nemenda um 165.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.oddeyrarskoli.is

Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og viðhald á húseign og lóð skólans, tækjum og innanstokksmunum og er tengiliður við Umhverfis- og mannvirkjasvið þar að lútandi. 
  •  Er verkstjóri og næsti yfirmaður skólaliða skv. skipuriti og ber því ábyrgð á skipulagningu ræstinga innan skólans og einnig að vera í samskiptum við þrifafyrirtækið sem sér um ræstingu á skólanum.
  • Tekur þátt í skipulagningu gæslu nemenda, hefur umsjón með sorpflokkun, snjómokstri, hálkueyðingu o.fl. 
  • Umsjón með búnaði skólans.
  • Umsjón með útleigu á húseigninni.
  • Húsvörður sinnir einnig öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri kann að fela honum, enda samrýmist þau starfssviði hans, s.s. tilfallandi eftirlit utan hefðbundins vinnutíma.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur reynslu af minniháttar viðhaldi húsa og lóða.
  • Hefur áhuga á að starfa með börnum og á auðvelt með samskipti við börn og fullorðna.
  • Hefur þokkalega þekkingu á tæknibúnaði og tölvukerfum.
  • Góð samskiptafærni og og þjónustulund.
  • Hefur reynslu af verkstjórn.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
  • Skipulagshæfileikar og snyrtimennska.
  • Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Víðivellir/Oddeyrarsk 149749, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar